Ég hef á síðustu árum unnið að því ásamt góðu samstarfsfólki að styrkja og efla Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Okkur hefur m.a. tekist að stórefla sértekjur sviðsins með aukinni styrkjasókn og öflugu samstarfi við stjórnvöld, stofnanir, fagfélög og menntafyrirtæki. Við höfum leitt Komdu að kenna átakið, sett á laggirnar ný námstækifæri og tekist að fjölga nemendum verulega. Ég er sérstaklega stolt af verulegum árangri okkar á sviði menntarannsókna og mikilvægri uppbyggingu doktorsnáms. Mín bjargfasta trú er sú að akademískt frelsi og þverfræðileg samvinna sé lykillinn að árangri. 

Rannsóknir

Rannsóknarsvið mín eru: formleg og óformleg menntun (e. extended education), menntastefna, samstarf í skóla- og frístundastarfi, frístundaheimili og æskulýðsrannsóknir. Ég hef birt fjölda fræðigreina og bókarkafla um þau viðfangsefni, ásamt því að vera stjórnvöldum og sveitarfélögum til ráðgjafar um menntamál.

RANNSÓKNARVERKEFNI

Núverandi verkefni

Innleiðing farsældarlaga í þremur sveitarfélögum á Íslandi. Ábyrgðarmaður rannsóknar. Í rannsóknarteyminu eru m.a. Oddný Sturludóttir, doktorsnemi, Guðrún Ragnarsdóttir, prófessor, og Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent. Tveggja ára styrkur frá Rannís (desember 2024-2026)

Tilgangur og merking í lífi ungs fólks. Hluti af Íslensku æskulýðsrannsókninni.

Fyrri verkefni

Innleiðing gæðaramma á frístundaheimilum, með Steingerði Kristjánsdóttur, aðjúnkt. Styrkt af Rannsóknasjóði Háskóla Íslands.

Leikur og óformlegt nám í leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöð (2018-2022). Styrkt af Rannsóknasjóði Háskóla Íslands.

Lesa meira