Rannsóknir
Rannsóknir mínar beinast að því að skilja hvernig ólík náms- og uppeldisumhverfi styðja við menntun, farsæld og þátttöku barna og ungmenna. Ég hef sérstakan áhuga að greina hvernig samstarf ólíkra aðila innan og utan skóla getur stuðlað að aukinni velferð, félagslegri þátttöku og árangri allra barna.
Helstu rannsóknarsvið mín eru:
› Þverfaglegt samstarf í skóla-, frístunda- og velferðarstarfi
› Frístundastarf, heildstæð menntun og fagmennska
› Líðan, farsæld og þátttaka barna og ungmenna
› Stefnumótun, menntastefna og þróun menntakerfa
› Nýsköpun og þróunarstarf á sviði menntunar
Leiðsögn og handleiðsla
Ég tek að mér leiðsögn meistara- og doktorsnema á sviðum sem tengjast rannsóknaráherslum mínum og styð nemendur við mótun rannsóknarspurninga, rannsóknarhönnun, fræðilega greiningu og vísindaskrif. Jafnframt veiti ég ráðgjöf við gerð rannsóknaráætlana og rannsóknarsjóðsumsókna, auk þess að taka þátt í mati og rýni rannsóknaverkefna innanlands og á alþjóðavettvangi.
Ráðgjöf, nýsköpun og gæðamat
Ég veiti ráðgjöf og sinni gæðamati á sviði menntunar, skólaþróunar og stefnumótunar í samstarfi við sveitarfélög, stofnanir, fagfélög, stjórnvöld og aðra hagaðila. Jafnframt styð ég við nýsköpunar- og þróunarverkefni þar sem markmiðið er að skapa nýjar lausnir, styrkja faglegt starf og stuðla að umbótum í menntun og þjónustu við börn og ungmenni.
Sérþekking mín nýtist meðal annars við:
› Stefnumótun og þróunarvinnu
› Innleiðingu breytinga og umbótaverkefna
› Nýsköpun í menntun og þjónustu við börn
› Mat á verkefnum og starfsemi
› Rannsóknastudda ákvarðanatöku
› Uppbyggingu samstarfs milli skóla, frístundastarfs og velferðarþjónustu
Rannsóknarsvið mín eru: formleg og óformleg menntun (e. extended education), menntastefna, samstarf í skóla- og frístundastarfi, frístundaheimili og æskulýðsrannsóknir. Ég hef birt fjölda fræðigreina og bókarkafla um þau viðfangsefni, ásamt því að vera stjórnvöldum og sveitarfélögum til ráðgjafar um menntamál.
RANNSÓKNARVERKEFNI
Núverandi verkefni
Innleiðing farsældarlaga í þremur sveitarfélögum á Íslandi. Ábyrgðarmaður rannsóknar. Í rannsóknarteyminu eru m.a. Oddný Sturludóttir, doktorsnemi, Guðrún Ragnarsdóttir, prófessor, og Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent. Tveggja ára styrkur frá Rannís (desember 2024-2026)
Tilgangur og merking í lífi ungs fólks. Hluti af Íslensku æskulýðsrannsókninni.
Fyrri verkefni
Innleiðing gæðaramma á frístundaheimilum, með Steingerði Kristjánsdóttur, aðjúnkt. Styrkt af Rannsóknasjóði Háskóla Íslands.
Leikur og óformlegt nám í leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöð (2018-2022). Styrkt af Rannsóknasjóði Háskóla Íslands.